ÓJE logo


hratt og örugglega

Frá minniháttar lekum til fullbúna baðherbergisuppsetninga - við veitum áreiðanlega pípulagnaþjónustu frá upphafi til enda.

Um okkur

Reyndir fagmenn. Vönduð vinnubrögð.

OJE Pípulagnaþjónusta er rekin af löggiltum pípulagningameistara með áratuga reynslu í faginu. Fyrirtækið veitir faglega og áreiðanlega þjónustu á sviði pípulagna fyrir heimili og atvinnuhúsnæði.

Við stærri eða sérhæfðari verkefni er unnið í samstarfi við húsasmíðameistara, sem gerir okkur kleift að bjóða einnig upp á smíðavinnu og endurbætur þegar þörf krefur.

Við leggjum áherslu á skýr samskipti, stundvísi, vönduð vinnubrögð og snyrtilegan frágang.

Ólafur Jarl Einarsson

Þórður Valdimarsson

Þjónusta

Heildarþjónusta fyrir fasteignir - frá

Við veitum faglega þjónustu á sviði pípulagna og smíðavinnu fyrir heimili og atvinnuhúsnæði, þar á meðal viðgerðir, endurbætur, viðhald og uppsetningar. Ekkert verkefni of stórt né smátt.

Pípulagnaþjónusta

  • Almennar pípulagnaviðgerðir
  • Nýlagnir
  • Skolp og drenlagnir
  • Viðgerðir og uppsetning á miðstöðvakerfum og snjóbræðslu
  • Viðgerðir og uppsetning á neysluvatns og frárennslilögnum
  • Allar pípulagnir fyrir baðherbergi og eldhús
  • Reglubundin umsjón fyrir hótel, húsfélög og fyrirtæki
  • Kostnaðaráætlun frí ef verður að viðskiptum

Smíðaþjónusta

  • Endurbætur og viðhald
  • Rakaviðgerðir
  • Innréttingar og tréverk
  • Glugga- og hurðaskipti

Ertu að selja eða kaupa fasteign?

Við bjóðum upp á faglega ástandsskoðun fasteigna þar sem markmiðið er að veita heildstætt og áreiðanlegt mat á ástandi eignar.

Skoðun er framkvæmd af starfandi húsasmíðameistara með víðtæka verklega reynslu. Eftir atvikum er unnið í samstarfi við löggiltan pípulagningameistara og rafvirkjameistara til að tryggja heildarmat á helstu kerfum og byggingarhlutum fasteignar.

Auk ástandsskoðunar bjóðum við einnig upp á mat og úrbætur á ofnakerfum, neysluvatnslögnum og öðrum pípulögnum.

Hvað felst í ástandsskoðun?

  • Heildarmat á byggingahlutum fasteignar
  • Skoðun burðarvirkis, þaks og útveggja
  • Mat á gluggum og hurðum
  • Rakamælingar og mat á raka- og myglutengdum vandamálum
  • Mat á lögnum og rafbúnaði
  • Skrifleg og greinargóð skýrsla

Gallerý

Myndir frá okkar verkum

Fagmennska & áreiðanleg þjónusta

Markmið okkar er að standa við bókaða tíma, upplýsa viðskiptavini um framgang verka og veita faglega ráðgjöf um bestu lausnir hverju sinni.

Löggiltir fagmenn

Skýr samskipti

Engir milliliðir. Þú talar beint við fagmann

Vönduð og snyrtileg vinnubrögð

Þjónusta sem þú getur treyst

Hafa samband

Vertu í

Við svörum fljótt og tryggjum góða þjónustu í öllum verkum - stórum sem smáum. Hringdu, sendu okkur póst eða fylltu út formið hér á síðunni

Svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er